| VB vörumeðhöndlun verður til |
|
|
|
| Written by Hilmar |
| Wednesday, 16 September 2009 15:58 |
|
Vélaborg ehf hefur undanfarin ár starfað á þremur meginsviðum; í landbúnaði, vörumeðhöndlun og verktöku. Nú hefur verið stofnað sérstakt fyrirtæki á sviði vörumeðhöndlunar, VB Vörumeðhöndlun ehf. (Vélaborg Vörumeðhöndlun). Það er fyrirtæki sem starfar samhliða Vélaborg og er aðallega á sviði vörumeðhöndlunar eins og nafnið gefur til kynna. Eins og staðan er í dag erum við í viðræðum við erlenda birgja með það fyrir augum að fá þá inn sem hluthafa. Þessar viðræður eru í góðum farvegi en ekki er hægt að svo stöddu að nafngreina þessa aðila. Stofnun þessa félags er búin að vera í undirbúningi frá því 2007, en það var ekki fyrr en að krónan féll í fyrra sem þeir sýndu þessu máli verulegan áhuga. Rekstur VB Vörumeðhöndlunar styrkir mjög stöðu Vélaborgar á íslenskum vinnuvéla og tækjamarkaði. Sem betur fer hefur Vélaborg ekki þurft að segja upp nema sárafáum starfsmönnum og enn starfa nærri 50 manns hjá Vélaborg, en sex manns starfa hjá VB Vörumeðhöndlun . Það er sorglegt að sjá hvernig samdrátturinn er að leika mörg félög í þessari atvinnugrein en við erum bjartsýn og höfum trú á því að með aðkomu fjársterkra aðila og sameinuðu átaki okkar öfluga starfsfólks stöndum við sterkari eftir en áður.
|
| Last Updated on Sunday, 28 February 2010 22:54 |